03/07/2026
Endurskoðunardagur FLE var haldinn í salnum Háteig á Grand hótel þann 22. maí sl.
Eelco van der Enden, framkvæmdastjóri Evrópusamtakanna Accountancy Europe, var í streymi og sagði okkur frá starfsemi samtakanna, helstu verkefnum sem eru fram undan og stefnumótun fyrir næstu ár.
Jón Arnar Baldurs, Árni V. Claessen og Margret G. Flóvenz fjölluðu um menntun endurskoðenda á víðum grundvelli. Skoðað var núverandi lagaumhverfi, fjallað um meistaranámið í háskólunum tveimur og þjálfunina á stofunum. Einnig var fjallað um löggildingarprófið, niðurstöður síðasta árs og breytingar fram undan. Þá var rætt um endurmenntun endurskoðenda og eftirlit með löggildingu þeirra. Loks var farið stuttlega yfir menntun endurskoðenda í nágrannalöndunum. Að þessu loknu var efnt til umræðna meðal fundarmanna og safnað tillögum þeirra um það sem betur mætti fara varðandi menntun endurskoðunarstéttarinnar og fengum við marga góða punkta til að vinna með.
Friðrik Einarsson, endurskoðandi hjá KPMG, sagði frá því hvernig notkun gervigreindar hefur haft áhrif á endurskoðun ársreikninga, hvernig hún hefur breytt verklagi á síðustu misserum, hver líkleg þróun sé í notkun í framtíðinni og hverjar eru helstu hindranir og hættur við notkun á henni.
Harpa Theodórsdóttir, staðgengill skrifstofustjóra í atvinnuvegaráðuneytinu, sagði frá frumvarpi til breytinga á lögum um ársreikninga sem nú liggur fyrir Alþingi og verður væntanlega að lögum nú á vorþingi, vinnuhópi um endurskoðun á lögum um bókhald og fyrirhugaðri innleiðingu á sjálfbærniregluverki Evrópusambandsins.
Takk öll fyrir komuna!