Taktikal

Taktikal

Share

Taktikal er leiðandi í ferlum fyrir öruggar auðkenningar, rafrænar undirskriftir og rafræna umsóknarferla.

Taktikal hjálpar fyrirtækjum að þróa lausnir fyrir rafræn viðskipti. Við trúum því að upplifun viðskiptavina sé það mikilvægasta í rafrænni viðskipta- og vöruþróun fyrirtækja í dag. Þjónustuupplifun viðskiptavina þarf að taka tillit til jafnt viðskiptaferla í fyrirtækinu sem og utanaðkomandi regluverks. Við hjálpum fyrirtækjum í verkefnum sem oft eru flókin og yfirgripsmikil og setjum þróunarvinnuna í vel mótað ferli sem auðveldar forgangsröðun og ákvarðanatöku.

Nýir stjórnendur ráðnir til Taktikal 22/04/2026

Við bjóðum Ásdísi og Breka velkomin til starfa!

Nýir stjórnendur ráðnir til Taktikal Tveir nýir stjórnendur, Ásdís Virk Sigtryggsdóttir og Breki Ómarsson, hafa verið ráðnir til Taktikal .

Taktikal | SmartFlows 26/02/2026

Með SmartFlows er hægt að setja sjálfur upp stafræna ferla sem geta komið í staðinn fyrir form á pappír. Við bjóðum upp á fjölmörg sniðmát þannig að auðvelt er að byrja og aðlaga síðan hvenær sem er ⚡️

“SmartFlows er algjör snilld að fá. Nú kom upp nýlega að við þurftum að uppfæra ferli vegna þess að breyting varð á FATF reglum. Það tók enga stund að uppfæra og þurfti enga sérhæfða þekkingu eða tímafreka forritun til að kippa því í lag. Það er algjör bylting.” - Þórleifur Stefán Björnsson, framkvæmdastjóri T Plús

Kynntu þér SmartFlows ➡️ https://www.taktikal.is/smartflows

Taktikal | SmartFlows Öflugt verkferlatól til að auðvelda umsóknar- og samningsferla. Með SmartFlows geturðu fengið nýjustu tækni án tímafrekra innleiðinga. Notendavænn ritill í umhverfi sem þarfnast ekki kóða, tryggir að allir geta útbúið verkferla sem samræmast þeirra kröfum og reglufylgni á n...

16/02/2026

💡 Einfaldaðu stafræna ferla og form með SmartFlows 💡

Með SmartFlows frá Taktikal getur þú sett upp stafræna ferla og uppfyllt strangt regluverk án þess að þurfa að fjárfesta í tímafrekum forritunarverkefnum. Við bjóðum heildstæða lausn sem gerir þér kleift að hanna form og eyðublöð á einfaldan hátt, hvort sem þau krefjast undirritunar eða ekki.

➡️ Prófaðu SmartFlows frítt í 30 daga

https://www.taktikal.is/smartflows

Photos from Taktikal's post 09/02/2026

Takk fyrir glæsilega UTmessan ✨ Það var einstaklega gaman að hitta alla frábæru þátttakendurna á föstudeginum og ekki síður ánægjulegt að fá tækifæri til að hitta framtíðar þátttakendur á laugardeginum 🌱

Photos from Taktikal's post 03/02/2026

Við hlökkum til að hitta fólk í básnum okkar á UTmessunni á föstudaginn. Taktikal SmartFlows verður þar í fyrirrúmi enda höfum við verið á fullu undanfarna mánuði að bæta við spennandi nýjungum í lausnina. Komdu við og kynntu þér málið.

Við tökum vel á móti gestum og verðum einnig með lukkuhjól fyrir áhugasama þar sem hægt verður að vinna spennandi vinninga 🍀

UTmessan Ský - Skýrslutæknifélag Íslands

Photos from Taktikal's post 26/01/2026

Við erum í skýjunum 🥰 Taktikal er með ánægðustu viðskiptavinina í rafrænum undirritunum fimmta árið í röð*. Takk fyrir okkur!

Við leggjum okkur fram um að bjóða framúrskarandi þjónustu ásamt tæknilausn sem sannarlega einfaldar fólkið lífið.

Með undirritunum í Taktikal getur þú:
🚗 Sparað ferðir
🚀 Aukið skilvirkni
🔏 Fengið meira öryggi
🌱 Dregið úr pappírsnotkun

Prófaðu frítt í 30 daga á taktikal.is

*Skv. stjórnendakönnun Maskínu sem var framkvæmd í desember 2025

Photos from Taktikal's post 21/01/2026

UTmessan nálgast og þar verður stuð ⚡️

Kíktu við á Taktikal básnum 💙 Við tökum vel á móti þér.

Sjáumst 6. febrúar!

13/01/2026

Taktikal verður á UTmessan í Hörpu 6.-7. febrúar nk. Kíktu við á básinn okkar og taktu þátt í lukkuhjólinu okkar 🍀

Við verðum á staðnum og getum sagt þér allt um hvernig lausnir Taktikal gera rafrænar undirritanir auðveldar og stafræna ferla örugga og skilvirka.

Ekki missa af okkur. Sjáumst!

22/12/2025

Gleðilega hátíð ✨

Við minnum á að lokað er á skrifstofum Taktikal á hátíðisdögum yfir jólin, þar með talið 24. og 31. desember.

24. desember - lokað
25. desember - lokað
26. desember - lokað
27. desember - laugardagur
28. desember - sunnudagur
29. desember - opið
30. desember - opið
31. desember - lokað
1. janúar - lokað
2. janúar - opið

Hlökkum til farsæls samstarfs á nýju ári 💙

22/12/2025

Gleðilega hátíð ✨

Við minnum á að lokað er á skrifstofum Taktikal á hátíðisdögum yfir jólin, þar með talið 24. og 31. desember.

24. desember - lokað
25. desember - lokað
26. desember - lokað
27. desember - laugardagur
28. desember - sunnudagur
29. desember - opið
30. desember - opið
31. desember - lokað
1. janúar - lokað
2. janúar - opið

Hlökkum til farsæls samstarfs á nýju ári 💙

Photos from Taktikal's post 17/12/2025

Gleðilega hátíð!

Taktikal óskar viðskiptavinum sínum og landsmönnum öllum gleðilegrar hátíðar. Árið hefur verið okkur gjöfult og það hefur verið sérlega ánægjulegt að fylgjast með viðskiptavinum okkar blómstra í sínum störfum með því að nota lausnir Taktikal.

Á árinu kynntum við fjölmargar nýjungar í SmartFlows, og við erum spennt að halda áfram að þróa og bæta þjónustuna á nýju ári. Við þökkum fyrir samstarfið á árinu og óskum öllum farsældar á nýju ári 💙

✨ Hönnun jólakveðju Taktikal 2025 var í höndum Eliška Adensamova, hönnuðar hjá Taktikal ✨

Want your business to be the top-listed Accountant in Reykjavík?

Click here to claim your Sponsored Listing.

Location

Telephone

Address


Háaleitisbraut 68, 5. Hæð
Reykjavík
103

Opening Hours

Monday 09:00 - 17:00
Tuesday 09:00 - 17:00
Wednesday 09:00 - 17:00
Thursday 09:00 - 17:00
Friday 09:00 - 17:00