21/10/2026
LEIKDAGUR!
Eftir þriggja ára undirbúningsvinnu og mikið puð en líka mikið stuð er komið að því. Spesía opnar í dag fyrir almenningi og af því tilefni viljum við bjóða ykkur velkomin í opnunarhóf, sem haldið verður í höfuðstöðvum okkar Sjávarklasanum á Granda og hefst kl. 17.
En nú spyrja sig margir, hvað nákvæmlega er Spesía og hvers vegna hefur tekið svo langan tíma að koma því á laggirnar?
Spesía býður fyrst fyrirtækja á Íslandi upp á sjálfvirka fjárfestingarþjónustu þar sem almenningur fær persónubundnar ráðleggingar og getur í framhaldinu fjárfest í alþjóðlegum verðbréfasöfnum.
Spesía er ekki dótturfyrirtæki eða vörumerki í eigu banka eða annarra fjármálafyrirtækja, heldur nýtt fyrirtæki sem leggur metnað í að vera óháð hinu hefðbundna kerfi þar sem stöðnun hefur ríkt í vöruþróun þegar kemur að fjárfestingarkostum almennings.
Þetta er stórt atriði.
Á Íslandi starfa vissulega mörg fyrirtæki, utan stóru bankanna, sem sinna margvíslegri fjármálaþjónustu. En að setja á stofn fyrirtæki í þessum geira sem stílar sína vöruþróun á almenning og er ekki aðeins að endurselja vörur annarra, er annað mál. Innkoma Spesíu hefur að þessu leyti verið líkt við innkomu indó fyrir nokkrum árum og það er töluvert vit í þeim samanburði.
Að koma slíku á laggirnar tekur töluverðan tíma. Við höfum byggt upp bakenda og framenda frá grunni, auk þess að sækja um og setja upp kerfi sem viðheldur viðamiklu starfsleyfi frá Fjármálaeftirlitinu, þróa vörumerki og markaðsefni. Þá sótti félagið sér fjármögnun með hlutafjáraukningu sem tryggði því ekki aðeins rekstrarfé heldur einnig sterka stuðningsaðila.
Meðal hluthafa í félaginu eru félög á vegum Guðmundar Fertrams Sigurjónssonar, stofnanda Kerecis, og Fanneyjar Hermannsdóttur, Margrétar Guðmundsdóttur, Skúla Gunnars Sigfússonar og Halldórs Friðriks Þorsteinssonar. Stjórnarformaður er Arnar Þór Másson, fyrrverandi stjórnarformaður Marel og núverandi stjórnarmaður í JBT Marel.
Spesía er því ekki aðeins vel fjármagnað, heldur einnig vel mannað og stuðningurinn er víðtækur enda er þjóðþrifaverk fyrir höndum: að láta almenning njóta góðs af þeim sparnaði sem fylgir fjártækni.
Í áraraðir höfum við fylgst með bankaútibúum loka og séð ýmis ferli innan bankastarfsemi sjálfvirknivæðast. Það eina sem virðist ekki breytast eru gjaldskrárnar.
Spesía treystir sér til að rukka lægri gjöld fyrir sína fjármálaráðgjöf og fjárfestingar heldur en áður hefur þekkst hér á landi...og þegar kemur að fjárfestingum þá eru gjöld ekki aukatriði heldur algjört aðalatriði.
Endilega kíkið á síðuna okkar www.spesia.is eða sækið appið beint í App Store eða Google Play. Það tekur enga stund að stofna reikning. Við hlökkum að heyra hvað ykkur finnst.
https://vb.is/frettir/spesia-opnar-fyrir-kaup-i-althjodlegum-verdbrefasjodum/
Áætlaður heildarkostnaður hjá Spesíu er 0,98% á ári, samanborið við um 2,4% meðalárskostnað íslenskra hlutabréfa- og blandaðra sjóða.